Skilmálar keppninnar

Þessi keppni er skipulögð af Tiger Ísland ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogi kt. 561001-2780 (sem sér um allar Flying Tiger Copenhagen verslanir á Íslandi).

 

Verðlaun

Verðlaunin eru þau að vinningshafi fær Store Run í einni af afmælisverslunum Flying Tiger Copenhagen á Íslandi. Store Run felst í því að vinningshafi hleypur um verslunina og safnar sem flestum hlutum sem mögulegt er á 60 sekúndum. Þátttakandi verður að fara yfir marklínu innan 60 sekúndna og fylgja öllum reglum Store Run sem tilgreindar eru í reglum keppninnar og/eða eins og starfsfólk Flying Tiger Copenhagen í versluninni segir til um. Ef þessum skilmálum er fylgt vinnur vinningshafi allar vörur sem hann/hún/hán safnaði.

 

Þátttökuskilmálar

  1. Þátttakendur í keppninni mega ekki vera starfsmenn Flying Tiger Copenhagen eða annara fyrirtækja tengdum Tiger Ísland ehf.

  2. Þátttakendur í keppninni verða að vera yfir 15 ára.

  3. Þátttakendur í keppninni þurfa sjálfir að sjá um ferðakostnað, uppihald eða gistingu í tengslum við þátttöku í keppninni.

  4. Flying Tiger Copenhagen velur einn vinningshafa.

  5. Vinningshafinn er valinn af þremur fulltrúum Flying Tiger Copenhagen. Ekki er hægt að kæra ákvörðun fulltrúanna.

  6. Vinningshafinn er látinn vita með tölvupósti. Einnig verður tilkynnt um vinningshafann í Instagram sögu á @flyingtigeris, sem vinningshafi samþykkir.

  7. Ef við heyrum ekkert frá vinningshafanum innan 7 daga áskilur Flying Tiger Copenhagen sér rétt til að velja nýjan vinningshafa.

  8. Til að eiga möguleika á að vinna, þarf vinningshafi að skuldbinda sig til að mæta í Store Run á ákveðnum tíma, sem valinn er af Flying Tiger Copenhagen.

  9. Ef svo óheppilega vill til að vinningshafi getur ekki mætt á settum tíma til að taka þátt í Store Run, áskilur Flying Tiger Copenhagen sér þann rétt að velja annan vinningshafa úr þátttakendum keppninnar.

  10. Verðlaununum er ekki hægt að skipta í aðrar vörur eða peninga. Allir hugsanlegir skattar eru borgaðir af vinningshafa.

  11. Um vörur, sem eru hluti af vinningnum, gilda ekki sömu vanalegu skilareglur. Ef varan er hinsvegar gölluð gilda sömu reglur og vanalega og Flying Tiger Copenhagen tekur fulla ábyrgð í samræmi við neytendalöggjöf.

  12. Vinningshafi þarf að samþykkja að vera í klæðnaði eða með fylgihluti sem Flying Tiger Copenhagen skaffar á meðan á Store Run stendur.

  13. Á meðan Store Run stendur, má vinningshafi eingöngu velja vörur en ekki t.d. gjafakort og má ekki sturta vörum í körfuna.

  14. Flying Tiger Copenhagen áskilur sér rétt til að (a) mynda og taka viðtal við vinningshafann á meðan og í tengslum við Store Run (b) nota upptökur og nafn vinningshafa frjálst í markaðsskyni á samfélagsmiðlum Flying Tiger Copenhagen og tengdum fyrirtækjum.

  15. Flying Tiger Copenhagen afsalar sér ábyrgð á tæknilegum vanda eða öðrum vandræðum sem gætu haft áhrif á þátttöku í keppninni eða lokaniðurstöðu hennar.

  16. Vinningshafinn tekur þátt í Store Run á eigin ábyrgð og Flying Tiger Copenhagen getur ekki borið ábyrgð á slysi og/eða tjóni sem hlotist gæti í tengslum við keppnina.

  17. Ef vinningshafi veldur tjóni á verslun eða vörum af ásetningi eða gáleysi á meðan á Store Run stendur, þarf viðkomandi að bæta Flying Tiger Copenhagen tjónið.

  18. Flying Tiger Copenhagen áskilur sér rétt til að (1) dæma þátttakendur úr leik ef þeir brjóta skilmála og reglur keppninnar og (2) útiloka vörur frá lokavinning ef vinningshafi hefur ekki fylgt leiðbeiningum og/eða brotið reglur Store Run, sem settar eru fram á netinu í Skilmálar og skilyrði eða af starfsfólki verslunarinnar.

  19. Þátttakendur samþykkja alla skilmála keppninnar með því að taka þátt í keppninni.

 

Vinnsla persónuupplýsinga

Persónulegar upplýsingar sem safnað er í tengslum við keppnina verða meðhöndlaðar í samræmi við friðhelgistefnu okkar Privacy Policy.

 


FSC icon
Sustainable forests

When you choose FSC®-certified goods, you support the responsible use of the world's forests, and you help to take care of the animals and people who live in them. Look for the FSC mark on our products and read more at flyingtiger.com/fsc